:: ..::Heimurenh i eygehm Bjergvehns::.. ::

Behold my greatness, and bathe all in the pleasure of my general proximity !!
:: welcome to ..::Heimurenh i eygehm Bjergvehns::.. :: bjorgvin | contact | SMS | Forza Milan ::
[::..tenglar..::]
:: Egill Harðar [>]
:: Zýrdur Rjómi [>]
:: Dr.Gunni [>]
:: Hitoshi [>]
:: Asian Prince[>]
:: Steini Gud [>]
[::..tón list..::]
:: Tom Waits [>]
:: Nick Drake [>]
:: Jimi Hendrix [>]
:: AC/DC [>]
:: Bon Scott [>]
:: M U S E [>]
:: Violent Femmes [>]
:: The Black Keys [>]

:: laugardagur, september 20, 2008 ::

Ef ég væri sjúklega fjáður, myndi ég eiga mína eigin útvarpsstöð þar sem á shuffle væru eingöngu mín lög. Kannski maður myndi skjóta inn á milli lagana lesin skilaboð, eins og t.d. "Davíð Oddson er spjátrungs eintrjáningur" eða eitthvað álýka.


:: Bjergvehn 18:06 [+] ::
:: föstudagur, júní 13, 2008 ::
Soldið síðan flutti ég meginþorra starfsfólks 'Heimsehns í eygehm Bjergvehns' yfir á síðuna www.bjergvehn.blog.is.
Tjékkidd.

:: Bjergvehn 08:16 [+] ::
:: fimmtudagur, júní 05, 2008 ::
Áhugaverð lesning er varpar nýju ljósi á símhlerunarmálið allt saman.

:: Bjergvehn 16:55 [+] ::
:: mánudagur, júní 02, 2008 ::
Nú hefur Jón Gerald Sullenberger sett á netið gríðarlegt magn gagna er tengjast Baugsmálinu svokallað.
Og ekki er hægt að segja að þessi gögn frá dómsmálinu munu koma til með að fegra ímynd Jón Ásgeirs og hans lagsbræðra.
 

:: Bjergvehn 17:02 [+] ::
:: laugardagur, maí 31, 2008 ::
::EM í bolta::
Nú þegar EM í knettsperneh fer að hefjast er ekki í vegi að huga að undirbúningi fyrir veizluna. Sjálfur langar mig í treyju Ítalska landsliðsins sem ber hér að líta.
Skv. netsíðu Jóa Útherja er uppsett verð fyrir gripinn heilar 10þúsund krónur. Svívirðileg hegðun Jóa, og ekkert annað en okur okur okur.
Skamm Jói skamm.

:: Bjergvehn 20:19 [+] ::
:: þriðjudagur, maí 27, 2008 ::
::Dylan í gær::
gærkvöldi rétt fyrir klukkan 20,00 var ég ásamt minni spúsu, foreldrum og tengdaforeldrum mættur í nýju Laugardalshöllina til að sjá og á hlýða litla manninn með stóra nafnið, Bob Dylan.

Verð ég nú bara að segja að ég varð fyrir frekar miklum vonbrigðum. En hefði svo sem getað sagt mér það fyrir að öll gömlu lögin hans verða aldrei fluttar aftur líkt og upprunalegu útgáfurnar. En ég veit að ég var langt í frá sá eini sem var fyrir vonbrigðum. Því eflaust mjög margir komnir til að heyra gömlu góðu lögin flutt í gömlu góðu útgáfunum.

Er fyrsta lagið var ca. hálfnað fattaði ég loks að þetta var eitt af hans betri eldri lögum 'Stuck Inside Of Mobile With The Memphis Blues Again' svo frábrugðið var það sinni upprunalegu mynd.

Bestu lög tónleikana voru þau nýjustu. Ástæða þess líklegast að þau voru hvað líkust upprunalegu upptökunum. Annars er hér að finna lagalistann sem meistarinn tók í höllinni í gær.

Perónulega fannst mér seinustu tvö lögin koma best úr, þ.e. 'Summer Days' og 'Ballad Of A Thin Man' sem er líklegast mitt uppáhalds Dylan lag. Og var útgáfa gærdagsins næsta eins og upprunalega, fyrir utan að raf-slagharpan spilar aðalstef lagsins í stað píanósins.

:: Bjergvehn 15:42 [+] ::
:: mánudagur, maí 19, 2008 ::
Í gær réðust úrslitin í ítölsku Seria A deildinni í knettsperneh. Margir mikilvægir leikir voru á dagskrá & mörg dramatísk úrslit litu dagsins ljós. Þar á meðal leit það út í um 54 mínútur að Roma tækist að stela Scudetto-inum úr skítugum krumlum Inter Milan manna. Einnig var það verulega tæpt hvort að Fiorentina eða AC Milan tæki 4. og seinasta meistaradeildarsætið á næstu leiktíð, og var þar mark Parma manna sem ranglega var dæmt af vegna rangstöðu sem að lokum varð til þess að Milan stórveldið varð að láta sér 5 sætið duga í ár. Og verða þeir því í UEFA bikarkeppninni næsta tímabil. Sem þeir eiga líklegast eftir að rúlla léttilega upp með einari (annarri hendi).
 
Það sem mér þótti merkilegast, og er ástæða þessa skrifa minna hér, er sú staðreynd að íþróttafréttatímar bæði RÚV og Stöð2 minntust einu agnarlitlu orði á þetta dramatíska slútt á sparkvertíð á Ítalíuskaga. Þykir mér það alveg magnað. Sérstaklega þegar hver eina hóst eða stuna sem heyrist frá ensku liðunum stóru ratar beint í sjónvarpsfréttirnar, og þá sérstaklega Stöð 2. En þar á bænum þykir engin íþróttafrétt merkileg, nema að þeir sjálfir hafi sýningarrétt á því. Hræsnarar.

:: Bjergvehn 13:52 [+] ::
:: þriðjudagur, maí 13, 2008 ::
Í gær sá ég forsíðu helgarblaðs Moggans & fannst lítið koma til. Forsíðan ber stóra mynd & innihaldslaust viðtal við fígúru eina er gengst undir nafni sem er samsuða af eigin viðurnefni og endingu ættarnafs frægasta & líklega massaðasta vaxtaræktarmanns sögunnar, sem síðar gerði það gott í Hollywood.
 
Ég hef ávallt haldið að forsíða morgunblaðsins ætti að vera frátekin einhverju er þykir merkilegt þá og þegar. Einhver stórfrétt eða stórviðtal við merka menn & konur er hafa eitthvað til brunns að bera, en ekki svona skrípatól. Eitthvað merkilegra, eða réttara sagt eitthvað í það minnsta smá merkilegt, hlýtur barasta að vera í fréttum þessa dagana en ályt einhvers athuglissjúklings sem virðist eingöngu vera fær um að fara í ljós, skella sér í ræktina og reyna að rífa kjaft..... Gæti ég til dæmis nefnt harmleikinn sem á sér stað í Búrma, með öllum viðbjóðnum sem honum  fylgir.
 
Nei, í staðinn velur Morgunblaðið, sem í áraraðir hefur verið talið merkilegasta dagblað landsins (þar til nýlega), að birta innihaldsnautt viðtal við innihaldsdautt krem & ljósabekkja dýr, með kríuskít í hárinu. Styrmir ritstjóri hlýtur bara að vera hættur & einhverjir 'popparar' tekið við. Ætli næsta skref sé ekki að breyta nafni blaðsins úr Morgunblaðið (með sínum fornfagra fonti) yfir í Mbl.is.

Skyldi þó ekki vera.

:: Bjergvehn 14:16 [+] ::
:: miðvikudagur, apríl 30, 2008 ::
::Franco & Mussolini::
Áhugaverðan lesning á eðli sjálfs-sér-skammta-flokkinn er að finna á heimasíðu Jonasar.

:: Bjergvehn 09:42 [+] ::
:: þriðjudagur, apríl 29, 2008 ::
::Gasmaðurinn fundinn ! !::



Þetta var þá bara Megas eftir allt saman. . "Megas, Megas, Megas, allir af götunni! Af spýrum á ég nógar. "

:: Bjergvehn 09:51 [+] ::
:: miðvikudagur, apríl 23, 2008 ::

::Með eða á móti mótmælum?::
Ég verð að segja eins og er að ég er eiginlega ekki enn búinn að gera upp hug minn um hvort ég sé með eða á móti þessum mótmælaaðgerðum atvinnubílstjóra sem staðið hafa nú svo lengi.

Ég er alveg sammála því að eitthvað þarf að gera, þar sem þingmenn sjálfs-ráðaflokksins á neinn hlusta & sitja sem fastast í sínum fílabeinsturnum. En ég er alveg ósammála því að mótmælin sjálf skuli þurfa að bitni á fólkinu sem málstað atvinnubílstjórarnir segjast svo vera að berjast fyrir.

Er það ekki hálfundarlegt & kjánalegt að berjast fyrir kjörum fólksins með því að gera líf fólksins sjálfs erfitt?? Tjahh eða líf lögreglumanna erfitt. Get ekki trúað að mikið vinnist með þessháttar aðgerðum.

En svona er þetta jú, við íslendingar bara kunnum ekki að mótmæla.


:: Bjergvehn 16:45 [+] ::
:: þriðjudagur, apríl 22, 2008 ::
::Meistaradeildin í kveld::
Þarf maður nokkuð að vera tippa á þennan Liverpool - Chelsea leik sem er á eftir ?
Vinnur Liverpool hvort sem er ekki á gefnu víti eða bolta sem fer ekki einu sinni inn fyrir marklínuna. Allavega svona í ljósi sögunnar & seinustu leikja er það alveg ljóst að þetta fjendans Liverpool fari áfram á einhverjum
skandal, eða grís.... Það einhvern veginn endar alltaf þannig. Enda eru flestir orðnir langþreyttir á því.

Mín spá er auðveld -> 0-0 í leiðinlegum leik. Vona ég svo að Chelsea fari nú loks áfram. Það eru allir orðnir leið á viðuregin þessara tveggja liða í meistaradeildinni & enn fleiri orðnir leiðir á livrarleiðindaliðinu a-tarna & hananú.

:: Bjergvehn 12:05 [+] ::
:: föstudagur, apríl 18, 2008 ::
Afhverju er Júróvisjón svona svakalega Gay-friendly, eða hommavæn? Er það söngurinn, er það öll gleðin, er það búningarnir, er það 'glamúrinn', eða er það bara allar hvítu tennurnar?

Mér er spurn.

:: Bjergvehn 15:58 [+] ::
:: fimmtudagur, apríl 17, 2008 ::
Seinustu 4 sunnudaga hefur verið útvarpaður þátturinn 'Furðufuglar', þar er kastljósinu hefur verið varpað að ferli snillingsins Tom Waits. Hægt er fyrir þá er vilja að hlusta á þætti 3 & 4 á vefnum, ruv.is/ras2.
 
Tvent við þetta þykir mér þó nokkuð skondið hér. Í fyrsta lagi þykir mér Tom Waits ekki mikill 'furðufugl', tjah jú auvitað er hann ekki allra & bærði frumlegur & óvenjulegur tónlistarmaður. Í annan stað er svo sá tónlistarmaður sem tekin er næst fyrir í þessum þætti enginn annar en fjöldamorðinginn & tónlistarmaðurinn Charles Manson. En þar er kominn maðurinn sem skipulagði líklegast einhver hrottalegustu morð 20. aldarinnar..... Hvað eru menn að setja mína mestu hetju í sama pott & þetta viðrini??
 
Ekki það ég þekki eitthvað til Mansons.

:: Bjergvehn 17:04 [+] ::
:: föstudagur, apríl 04, 2008 ::
::Thor Pilsner::
Um daginn gerði ég mér ferð í mjólkurbúðina, þar er jeg keypti nokkur eintök af bjór í litlum dósum. Tilgangurinn var að finna mér einhverja góða tegund í litlum & handhægum umbúðum sem færi vel í kæli sem & í hönd.

Verð ég að segja að mjög vel mér líkar við við Thor Pilsner tegundina dönsku. Virkilega ljúfur & góður mjöður þar á ferð, sem allir ættu að getað líkað við.

Ætla ég nú að gera mér ferð & kaupa einn stykki kassa fyrir helgina & komandi viku. Takk fyrir & góða helgi.

:: Bjergvehn 16:48 [+] ::
:: fimmtudagur, apríl 03, 2008 ::
Það góða við það að berjast gegn veggjakrotss-pellvirkjum er að nánast eina sem þeir hafa áhuga á að gera er að merkja (spreyja, tússa, krota) alla veggfleti er þeir komast yfir sínu eigin merki, sem mætti kalla undirsskrift þeirra.
 
Þannig að eina sem þarf að gera er að nappa þá einu sinni & þá er hægt að tengja þá við nánast alla þeirra fyrri glæpi. Vegna þess að þeir eru einfaldlega merktir þeim.

:: Bjergvehn 17:03 [+] ::
:: mánudagur, mars 31, 2008 ::
Allt þetta veggjarkrot & graffiti viðbjóður sem er að finna í hverfinu mínu, 101 Reykjavík, sem hefur verið að aukast verulega á seinustu misserum þykir mér miður skemmtilegt.
 
Perónulega finnst mér þetta athæfi fólks álíka gáfulegt og athæfi hunda, er míga á vissa staði til að dreifa lykt sinni um víðann völ í þeirri von að vekja á sér athygli & orðspors auka. Mannheimska í kristal tærri mynd.
 
Ég man þegar ég kom fyrst til Mílanóborgar ítalskra. Var þá allt veggjakrotið með því allra fyrsta sem ég tók eftir. Þótti mér það verulega ljótt & dró aðeins úr spenningi mínum. Því það er staðreynd að engum nema spllvirkjanum sjálfum sem þykir þetta fagurt/flott. Þetta er dónaskapur, subbuskapur, mannheimska og ósvífni við alla menn.

:: Bjergvehn 17:42 [+] ::
:: laugardagur, mars 29, 2008 ::
Ég hvet alla megna þjóðfélagsþegna þessa lands að lesa sér grein Hallgrím Helga í Fréttablaði dagsins í dag, þar er hann ritar um vá & vanda er að oss nú steðja.

Valdið er laust - lesist hér.

------------------------------
Nú á eftir fara fram tveir merkir knattspyrnuleikir á ítalíuskaga. En þar er spennan um Scudetto-inn farinn að hitna all verulega.

Núna klukkan 5 tekur litla Cagliari á móti galvöskum rauðu Rómversku riddurunum, sem þessa dagana eru í hörkuformi. Tveim og hálfum tíma seinna ríða blá-svörtu milanómenn inn til rómar er þeir þar munu reyna að verja sitt fjögurastiga forskot á toppi deildarinnar gegn liðsverjum himinbláma Lazíó mann.

Inter Milan hefur drottnað yfir öðrum liðum deildarinnar allt þetta tímabil, og um langan tíma leit út fyrir að kapphlaupið um Scudetto-inn væri í raun forgangsatriði. En í seinni tíð hafa Inter menn náð að taka upp sína fyrrum iðju, að skjóta sig í löppina.

Hvernig mun inter mönnum ríða af, ná þeir að taka sig saman í andlitinu eður ei. Heyrst hefur að sjálfur 'the special one' Jose Mourinho sé nú staddur í tískuborginni sjálfri að ræða við ráða menn Inter um stjóra stöðuna. Fallegt skot það í eigin fót hjá þessum vitleysingum. Mun vísast til styrkja stöðu Manchini þjálfara meðal leikmanna sinna & vinna trú & traust þeirra nú á endasprettinum um dolluna dýrmætu. . . Eða ekki.

:: Bjergvehn 13:22 [+] ::
:: föstudagur, mars 28, 2008 ::
::Geðveiki Islams::
Myndin Fitna eftir Hollendingin Geer Wilders sem lekið hefur nú á netið, er góð viðvörun við geðveiki og trúarsýki er hinn Íslamski heimur þjáist af.

Varúð ! ! Viðkvæmum sálum er varað við þessu efni.


Ég held að öfgafulli músliminn sé ekki ósvipaður sjálfstæðismanninum. Valdsjúkur gráðugur & rökþrota.

:: Bjergvehn 16:48 [+] ::
:: fimmtudagur, mars 27, 2008 ::
::Dagur 52::
Í dag er gips-dagur númer 52.
Að því tilefni fór ég í endurkomudeild bæklunardeildar (eða hvað það nú heitir) Borgarspítalans gamla.

Á biðstofunni er frekar súrrealískt andrúmsloft að finna.
Fyrir miðju langs gangsins stendur lítið sjónvarp úr veggnum, en þar er ávallt í gangi spánska sápuopera frá á að giska 8 áratug seinustu aldar.

úrval tímarita í biðganginum er í líkingu við það er maður gæti vænst að finna í útrýmingarbúðum.
Af því sem ég fann fletti ég aðeins í enska unglingablaðinu J17 frá 1999.
Þvínæst gluggaði ég rétt svo aðeins í tímariti psoriasis- & exemsjúklinga.
- Virkilega áhugavert.

Annars var gipsið sagað af mér, og mér sagt að ganga með 1,5 cm. hæl í skónum mínum næsta 3 - 4 mánuðina. Svo á ég að fara varlega. Má ekki fara í sund að synda fyrr en eftir 2 mánuði, og að hjóla má ég ekki fyrr en 3 mánuði.
Hafði ekki hug að spyrja læknarakonuna hvenær ég mætti fara að hlaupa, hvað þá að spila fótbolta aftur.

Þannig að 52 dögum liðnum, er enn lang í land ég geti hafið knattspyrnuferil minn.

Skyldu Galliani & Berlusconi vita af þessu??

:: Bjergvehn 16:33 [+] ::
:: miðvikudagur, mars 26, 2008 ::
Mig dreymdi Mílan í nótt. Er það svo sem ekkert nýtt. Mig dreymir mjög oft að ég sé staddur í La bella Italia, enda leitar hugurinn oft þangað að skiljanlegum ástæðum. Algjörlega óljóst er hvenær ég muni heimsækja Italy heim aftur, vonandi sem fyrst.
Í gær var ég aðeins að skoða Villur til leigu í Toskana héraði, en það væri gott frí að hópa saman góðu fólki, leigja góða villu með sundlaug á góðum stað & gera ser ferð einhvertímann í sumar.

:: Bjergvehn 10:12 [+] ::
:: miðvikudagur, mars 19, 2008 ::
Gúffaði tveim litlum súkkulaði eggjum í mig áðan. Fínt.
 
"Lygaranum er ekki trúað - jafnvel er hann segir satt"
"Pennin er máttugri en sverðið"
 
Áhugavert..  Eða hittó

:: Bjergvehn 14:53 [+] ::
:: mánudagur, mars 17, 2008 ::
::Neon páska-gult gips::
Fór á föstudaginn enn einusinni enn uppá slysó. Þetta skiptið fékk ég nýtt gips og sóla. Nú má ég stíga í fótinn. Og er það gríðarlegur munur & breyting á öllu mínu lífi. Það auðveldar allt að geta stígið í fótinn og hafa báðar hendur fríar.

Í fallega góða veðrinu á laugardaginn komst ég loks út úr húsi og á lappir. Mér leið hálfpartin eins og belja að vori, fyrir utan auðvitað ég var ekkert að hlaupa eða hoppa út um allt af fögnuði. En ég stökk aðeins og rambaði mér niður á tjörn, listasafn íslands og fékk mér sushi á sushi lestinni IÐU húsinu. Snilldar apparat.

Set inn gips myndir von bráðar.

:: Bjergvehn 22:17 [+] ::
:: miðvikudagur, mars 12, 2008 ::
Í dag er 37 dagur gips lífreynslu minnar. Tími hoppa, óþæginda & almenns vesens. Get ekki sagt það hafi verið gefandi eða eitthvað sem ég hefði ekki verið til í að sleppa við. Er orðinn þreyttur á þessu, eiginlega alveg dauðþreyttur.

Föstudaginn næsta verður gips númer 4 tekið af mér. Og ef bæklunarlæknirinn & húkkurnar geta komið fætinum í 90° þá held ég þær setja á mig 'göngugips'. Það mun færa mér þann eiginleika aftur að getað stígið í hælinn.

:: Bjergvehn 14:25 [+] ::
:: þriðjudagur, mars 11, 2008 ::
Á sunnudaginn sá ég í Háskólabíói myndina 'There will be blood'. Og er ég þá búinn að sjá báðar aðal Oscars myndir ársins, fyrrnefndu og svo 'No country for old men'. báðar myndirnar eru auðvitað mjög góðar, en nokkuð fjarri því til að teljast meistaraverk. Í mínum augum er stærsti munurinn á þessum tveim myndum endirinn.
Endirinn á 'No country for old men' er að mínu viti eintómt bull, hálfgerður David Lynch ruglings endir þar að ræða.
Hinsvegar er endir 'There will be blood' virkilega mjög fyndinn og magnaður, fyrir utan auðvitað blá endinn sjálfann.... sem er auðvitað bara brútal.
 
Þannig að allt tal um 'bestu mynd sem gerð hefur verið' og 'meistaraverk' er orðum ofaukið. Þó vissulega séu báðar myndirnar frábærar.

:: Bjergvehn 15:32 [+] ::
:: sunnudagur, mars 09, 2008 ::
::Bókalestur 2008::
Í upphafi árs setti ég mér þau markmið að lesa meira á árinu 2008 en ég gerði á því nýliðna. Telst mér svo til að það ár hafi ég líklegast aldrei lesið minna.

Það sem er af þessu ári hef ég klárað lestur bókanna:
- 'The Wolf of Wall street'. Ævisaga Jordan Belford
- 'Meistarinn og Margaríta' eftir Bulgakov

Þær bækur sem eru næstar í röðinni eru eftirtaldar:

- 'The many lives of Tom Waits' - er á náttborðinu núna
- 'Minnisbók' Sigurðar Pálssonar
- 'Sól í norðurmýri, píslasaga úr austurbæ'. Ævisaga Megasar
- 'KK - þangað sem vindurinn blæs' Skrifuð af Einari Kárasyni
- 'Brave new world' - Aldous Huxley

Svo einhverntímann var ég hálfnaður með Draumalandið hans Andra Snæ. En lagði hana upp á hillu fyrir löngu.

:: Bjergvehn 10:58 [+] ::
:: miðvikudagur, mars 05, 2008 ::
::Íslensk sturlun::
Í Morgunblaðinu í morgun bar að líta fréttina "Sala á bílum og utanlandsferðum sjaldan meiri þrátt fyrir niðursveiflu".
Þetta þykir mér verulega merkilegt, og líklegast sýna best hve við íslendingar getum verið geðveikir, algjörlega sturlaðir þegar kemur að einkaneyslu.

Á seinasta ári var eyðslan á bílum auðvitað ekkert annað en geðveik, en sú staðreynd að sala á fólksbílum sé að aukast um 43% á þessu ári undirstrikar klárlega sturlunina í þessu þjóðfélagi.

:: Bjergvehn 08:54 [+] ::
:: þriðjudagur, mars 04, 2008 ::
::Meistaradeildar Spá kvöldsins::
Einsog öllum er kunnugt er undirritaður gríðarlega spádómslega vaxin. Vænta má því að meginþorri spádóma á síðu þessari muni koma til með að verða að veruleika.

AC Milan - Arsenal 1-0
- Andrea Pirlo mun setja eitt á litlu Nalla greyin með þrumuskoti, og koma þar með heims- & evrópumeisturum Milan áfram.

Barcelona - Celtic 2-0
- Ætti að vera létt fyrir Katalónana, en maður veit þó aldrei með dugmiklu skotana. Þeir gætu komið á óvart hér, en spái þó öruggum spánarsigri.

Man Utd - Lyon 2-0
- Júnæted klikka ekki á svona löguðu, enda eru þeir uppá sitt besta þessa dagana.

Sevilla - Fenerbahce 3-1
- Það er komin mikil sigurhefð í Sevilla menn eftir seinustu ár sem sigursælasta lið UEFA keppninnar.

:: Bjergvehn 13:07 [+] ::
:: mánudagur, mars 03, 2008 ::
::Stuldur?::
Á bylgjum Rás2 var ég að heyra lagið 'örlagablús' með hljómsveitinni Klassart af plötu þeirra 'Bottle of blues'. Verð ég að segja að hér er klárlegur stuldur af melódiu meistara Tom Waits. Mæli með þið hlustið á lagið 'Invitation to the blues' af snilldarverki hans 'Small Change'.

Á vef tonlist.is er hægt að heyra tóndæmi íslenska lagsins.
Hér fann ég svo tóndæmi TW lagsins góða.

:: Bjergvehn 13:06 [+] ::
:: miðvikudagur, febrúar 27, 2008 ::
::Skemmtileg frétt::
Mér var að berast heldur skemmtileg fréttaklippa sem tekin er úr dagblaðinu 'Dagur' frá árinu 1977. Auðveldlega mætti halda að fréttinn sé eitthvað eldi en rétt rúmlega 30 ára. Sjá hér að neðan. - Smellið til að sjá betur -


:: Bjergvehn 18:57 [+] ::

This page is powered by Bloggerhhheh.